From 1 - 10 / 22
  • Categories  

    IS: Í korstjánni er hægt að skoða hæðarlíkan af Íslandi og hlaða því niður. en: The Digital Elevation Model (DEM) Map from Náttúrufræðistofnun allows to view and download the DEM, find its derivative like slope and orientation and much more. ÍslandsDEM refers to "Digital Elevation Model (DEM) of Iceland" in English. A DEM is a digital representation of the Earth's surface topography, typically represented as a grid of elevation values. It provides information about the height or elevation of the terrain across a specific area, allowing for the creation of detailed three-dimensional representations of the landscape. DEM data is widely used in various applications, including geographic information systems (GIS), environmental modeling, land use planning, engineering design, and natural resource management. It can be used to analyze terrain characteristics, calculate slope and aspect, identify drainage patterns, model water flow, and assess landscape suitability for various purposes.

  • Categories  

    Í desember 2011 var ný geóíða reiknuð fyrir Ísland í samstarfi við DTU Space í Danmörku. Megin tilgangur þessara útreikninga var að reikna nýja og nákvæmari geóíðu af Íslandi og tengja hana við Landshæðarkerfi Íslands ISH2004. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar, nánar tiltekið hér: https://www.lmi.is/is/maelingar/grunnkerfi/geoida

  • Categories  

    ELF Elevation (EL) Iceland is one of 12 themes in the European Location Project (ELF). The purpose of ELF is to create harmonised cross-border, cross-theme and cross-resolution pan-European reference data from national contributions. The goal is to provide INSPIRE-compliant data for Europe. A description of the ELF (European Location Project) is here: http://www.elfproject.eu/content/overview Encoding: INSPIRE version 4

  • Categories  

    Íslenska: Frá 2015 hefur verið opið aðgengi að hæðargögnum af Norðurheimskautinu (norður af 60°N, þar með talið af Íslandi). Gögnin hafa gengið undir nafninu ArticDEM og eru frá Polar Geospatial Center sem er staðsett í University of Minnesota (https://www.pgc.umn.edu/data/arcticdem/). Gögnin urðu til við vinnslu mikils magns af landhæðarlíkönum, flest frá 2012 en elstu gögnin eru frá 2008. Landhæðarlíkönin eru unnin úr steríópörum af gervitunglamyndum frá WorldView 1-3 og GeoEye-1. Notast var við SETSM sem er opinn hugbúnaður fyrir stafrænar myndmælingar á Bluewaters ofurtölvu University of Illinois. Hvert landhæðarlíkan hefur 2x2 m upplausn og dekkar um 18X100 km stórt svæði á jörðu. Samstarf Náttúrufræðistofnunar, Veðurstofunnar og Polar Geospatial Center leiddi til þess að eftirfarandi aðferðir voru þróaðar til þess að vinna með gífurlegt magn gagna. Aðferðirnar eru: 1- Samræma staðsetningu allra landhæðarlíkana 2-Búa til samsett landhæðarlíkan úr öllum líkönunum með því að búa til þekju sem geymir tíma gagnanna. Hver pixill í samsetta líkaninu sem er unnið úr ArcticDEM er miðgildi allra líkana sem fyrirfinnast á svæðinu. English: Since 2015, elevation data from the Arctic (north of 60°N, including Iceland) started to be openly available through the ArcticDEM project, led by the Polar Geospatial Center, University of Minnesota (https://www.pgc.umn.edu/data/arcticdem/). This data consists of a large amount of Digital Elevation Models (DEMs) repeatedly acquired (multitemporal), typically from 2012-present, and the oldest data reaching back to 2008. The Digital Elevation Models (DEM) are derived from satellite sub-meter stereo imagery, particularly from WorldView 1-3 and GeoEye-1. The processing of the DEMs was done using SETSM, an open-source digital photogrammetric software, in the Bluewaters supercomputer (University of Ilinois). Each DEM has 2x2m resolution and a footprint of ~18x100km. In a collaborative effort between the Institute of Nature Research, the Icelandic Meteorological Office and the Polar Geospatial Center, we developed methods to handle and process a large amount of data available for Iceland. The methods developed consisted of: 1-Spatial adjustment of all the available DEMs, for homogeneity and consistency in the location of each individual DEM. 2-Robust mosaicking into one single DEM of Iceland, by taking advantage of the multi-temporal coverage of DEMs. Each pixel of the mosaic corresponds to a median elevation value from the possible elevations available from the ArcticDEM. For 3D printing the elevation model see: https://leidbeiningar.lmi.is/instruction/3dprinting

  • Categories  

    Gögnin voru tekin saman í byrjun árs 2015. Þau eru sett saman úr dýptarlínum úr sjókortum í tveimur mælikvörðum. Annars vegar í 1:100.000 og hins vegar í 1:300.000. Dýptarlínur í sjókortum eru ekki með jöfnu bili. Dýptarlínurnar eru þessar: 10 m, 20 m, 50 m, 75 m, 100 m, 150 m, 200 m, 300 m, 400 m, 500 m, 1000 m, 1500 m og 2000 m. Landhelgisgæsla Íslands safnaði gögnunum og annast um drefingu. Gögnin ná ekki til alls landsins. Helstu eigindi eru jafndýpislínur með dýpisgildi. Um er að ræða stök kort eða samsett í stærri heild á shape formi.

  • Categories  

    Þann 16. mars 2011 gáfu Náttúrufræðistofnun út í fyrsta sinn sameiginlegt hæðarkerfi fyrir Ísland. Kerfið er kallað Landshæðarkerfi Íslands og er viðmiðunin ISH2004. Tilkoma sameiginlegs hæðarkerfis markaði stór tímamót í sögu landmælinga á Íslandi. Á sama hátt og viðmiðunin ISN93 skapaði grundvöll fyrir alla til að vinna í sama hnitakerfi mun ISH2004 skapa grundvöll fyrir alla til að vinna í sama hæðarkerfi. Eitt samræmt hæðarkerfi er mikilvægt fyrir ýmsar framkvæmdir s.s. vegagerð og jarðgangnagerð og á ýmsum sviðum umhverfisvöktunar, skipulags og áætlanagerðar. Auk þess munu gögnin nýtast við rannsóknir á jarðskorpuhreyfingum eða breytingum á yfirborði sjávar. Mælingar á Landshæðarkerfinu eru standa ennþá yfir og frá fyrstu útgáfu þess árið 2011 hafa bæst við eftirfarandi línur hallamælilínur. • Flókalundur-Bolungavík • Reykjavík-Keflavík • Endurmæling á Suðurlandi vegna jarðskjálftans 2008 • Hellisheiði • Reykjanesbraut-Grindavík • Þjóðvegur 1-Akranes • Kjölur Niðurstöður nýrra mælinga verður bætt inn í þetta gagnasett um leið og þær liggja fyrir.

  • Categories  

    Punktaþekja með staðsetningum og upplýsingum um örnefni á landgrunni Íslands. Texti og skýringar eru bæði á íslensku og ensku.

  • Categories  

    Úr loftmyndum af Breiðafirðinum var gert hæðarlíkan og gögnum skilað sem vektorgögnum, þ.e. punktar, brotlínur og 2m hæðarlínur. Hæðarlíkanið er "tin" model sem þýðir að líkanið er með óreglulegri punktdreifingu. Punktþéttleikinn er 5-10 m. Hæðarlíkanið er unnið upp úr loftmyndum af Breiðafirði og þekur svæðið 265 km2. Hæðarlíkani á rasterformi var ekki skilað. Gögnin voru unnin af Samsýn ehf upp úr loftmyndum sem teknar voru 2.8.2008. Sjá hér í landupplýsingagáttinni "Breiðafjörður-Myndkort".

  • Categories  

    Myndirnar voru teknar af Swedesurvey á tímabilinu 19.ágúst-09.september 2000. Viðmiðunarflöturinn er sporvalan WGS84 og nákvæmnin er +/- 2m (e. relative accuracy). Um er að ræða 58 myndir sem teknar voru árið 2000 er færðar inn í kerfi LMÍ 14.06.2001. Myndirnar eru í mælikvörðunum 1:13.000 / 1:20.000 / 1:36.000. Hæðarlíkan (og hæðarlínur) var unnið af Swedesurvey út frá myndunum. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá stofnuninni: natt@natt.is. LMÍ keyptu fullan afnotarétt á myndirnar og gögnin og má stofnunin dreifa þeim. Séu myndirnar og/eða gögin notuð þarf að geta uppruna þeirra, þ.e. að þau séu upprunalega frá Swedesurvey (höfundaréttur) en í eigu LMÍ. Um er að ræða svokallað "pilot project" sem ákveðið var að framkvæma sem hluta af undirbúningi áður en hafist var handa við vinnuna á landsþekjandi gagnasafni LMÍ, IS 50V. Á þessum tíma voru einungis til gömul gögn (er fyrir utan DMA kortasvæðið). Kannað var á afmörkuðu svæði hver kostnaður gæti orðið fyrir gögn fyrir allt landið og hvaða gæðakröfur ætti að gera.

  • Categories  

    Hæðarlínur og landlíkan unnin upp úr loftmyndum af Markarfljóti. Vektorgögn: Gögnin voru unnin af Samsýn ehf og voru unnin upp úr myndkortinu af sama svæði. Geymd í ArcGIS File Geodatabase. Gögnin eru flokkuð skv. staðli IST120 frá árinu 2007. Hnitakerfi er ISN93, lambert kortvörpun. 3 Fitjuklasar afhentir: - Hæðarlínur með 1 m. millibili - Hornpunktar þríhyrningalíkans af landi - Brotlínur landlíkans (þrívíðar) Útgáfudagsetningin 09.12.2010 er tekin af lýsingunni sem fylgdi gögnunum til LMÍ. LMÍ gerði nytjaleyfissamningur um gögn Samsýnar ehf úr loftmyndum af Eyjafjallajökli og Markarfljóti, í umboði nokkurra stofnanna: - Vegagerðin - Landgræðslan - Veðurstofa Íslands - Umhverfisstofnun - Náttúrufræðistofnun. Gögnin voru unnin úr loftmyndum, annars vegar úr háflugi yfir Eyjafjallajökli og hluta Mýrdalsjökuls og hins vegar úr lágflugi yfir Markarfljóti. Ástæðan fyrir því að farið var út í þetta verkefni var eldgosið sem átti sér stað sama ár (2010)í Fimmvörðuhálsi. Tilgangurinn var að greina breytingarnar sem eldgosið orsakaði. Verkefnið var tvískipt: Annars vegar var um að ræða þetta hæðarlíkan og hins vegar myndkort. Sjá lýsigögnin hér í Landupplýsingagáttinni undir "Markarfljót - myndkort".