From 1 - 10 / 45
  • Categories  

    Loftmyndasjáin er vefsjá með sögulegum loftmyndum og er byggð á loftmyndasafni Náttúrufræðistofnunar sem nær rúmlega 80 ár aftur í tímann. Vefsjáin var hönnuð hjá Landmælingum Íslands í samstarfi við Jarðvísindastofnun HÍ og Fjarkönnunarmiðstöð HÍ. Loftmyndunum sem finna má í vefsjánni (https://www.lmi.is/is/landupplysingar/fjarkonnun/loftmyndasafn) hefur verið safnað úr flugvél, þær skannaðar og breytt í kort. Vefsjáin gefur því fólki færi á að stökkva upp í nokkurs konar ferðatímavél yfir Íslandi og skoða þær breytingar sem orðið hafa á landslagi, t.d. af völdum eldgosa, hopunar jökla eða útbreiðslu plantna, og í þéttbýli síðustu 80 árin. Loftmyndasjáin nýtist við kennslu, rannsóknir og sögu auk þess að svala almennri forvitni. Aðgangur að vefsjánni er öllum opinn og án gjaldtöku.

  • Categories  

    Samsettar og uppréttar sögulegar loftmyndir af Íslandi. Unnið er að því að staðsetja loftmyndir frá 1974 og 1994 – 2000 úr loftmyndasafni Náttúrufræðistofnunar (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/d2323e18-ab9f-495d-8a4e-58c2a5fb096e ). Myndirnar eru birtar jafnóðum og búið er að staðsetja þær en ætlunin er að staðsetja eldri myndir síðar. Svæði af myndum sem teknar voru í sama flugi og úr sömu flughæð eru sett saman. Upplausn myndanna er yfirleitt 50 cm. Búið er að vinna myndirnar með sjálfvirkum aðferðum. Ákveðnar staðsetningar eru valdar af gervitunglamyndum (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/e542c260-6431-48a5-8065-93350b8cb3a1) og stilltar af á ÍslandsDEM landhæðalíkaninu (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/e6712430-a63c-4ae5-9158-c89d16da6361 ). Gerð eru nákvæm landhæðalíkön úr sögulegu loftmyndunum þar sem hæðarnákvæmni er yfirleitt innan við 1 m. Líkönin eru síðan notuð til að staðsetja loftmyndirnar. Áætluð staðsetningarnákvæmni myndanna er minna en 2 m. ---------------------------------------------------------------------------------------------------------------- This repository includes orthorectified and mosaicked historical aerial images from all over Iceland. The datasets are created from historical aerial images on film from the years 1974, 1994 - 2000 from the aerial photograph collection of the NLSI (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/d2323e18-ab9f-495d-8a4e-58c2a5fb096e). Each mosaic is created from images taken on the same day at approximately the same height. The resolution of the mosaics is usually 50 cm. The historical photographs have been processed using automated methods of detection of points of interest (control points?) using the Maxar mosaic (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/e542c260-6431-48a5-8065-93350b8cb3a1)) followed by a refined correction of the cameras using the IslandsDEM (https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/ice/catalog.search#/metadata/e6712430-a63c-4ae5-9158-c89d16da6361) as reference. For each block of historical photographs, an accurate Digital Elevation Model (DEM) is created (where the vertical accuracy is typically better than 1 m), which is used to orthorectify the aerial photographs. The estimated horizontal accuracy of the orthorectified aerial imagery is better than 2 meters.

  • Categories  

    Röð uppréttra loftmynda úr loftmyndasafni Náttúrufræðistofnunar sem unnar voru á árunum 2013 til 2018 hjá Jarðvísindastofnun HÍ, sem partur af tveimur verkefnum: 1 - Mælingar á jöklabreytingum úr sögulegum loftmyndum. Þetta verkefni var unnið af Joaquín M.C. Belart í M.Sc. og Ph.D. hjá Jarðvísindastofnun. Útvaldar loftmyndir frá 1945 til 1994 voru skannaðar hjá Landmælingum Íslands sérstaklega fyrir þetta verkefni. Vinnsla þessara loftmynda fór fram með því að nota "Ground Control Points" (GCP) sem teknir voru úr lidarmælingum á íslenskum jöklum. Úrvinnsla gagna úr Drangajökli fór fram með ERDAS hugbúnaðinum. Nánari upplýsingar um vinnsluna er að finna í Magnússon o.fl., 2016 (https://tc.copernicus.org/articles/10/159/2016/tc-10-159-2016.html). Úrvinnsla gagna frá öðrum jöklum var unnin með MicMac hugbúnaðinum, einnig með GCP teknir af lidar. Nánari upplýsingar um vinnsluna eru fáanlegar í Belart o.fl., 2019 (https://www.cambridge.org/core/journals/journal-of-glaciology/article/geodetic-mass-balance-of-eyjafjallajokull-ice-cap -for-19452014-processing-guidelines-and-relation-to-climate/9B715A9E0413A6345C2B151B1173E71D) og Belart o.fl., 2020 (https://www.frontiersin.org/articles/10.31630/feart/full.316390/feart. 2 - Mælingar á hraunmagni Heklugosanna á XX öld. Þetta verkefni var unnið af Gro B.M. Pedersen sem hluti af verkefni þar sem unnið var að umhverfiskortlagningu og vöktun Íslands með fjarkönnun "Environmental Mapping and Monitoring of Iceland by Remote Sensing" (EMMIRS, fjármagnað af Rannís) á árunum 2015-2018. Loftmyndirnar af Heklu frá 1945 til 1992 voru skannaðar af Landmælingum Íslands. Vinnsla þessara mynda var gerð með ERDAS hugbúnaðinum og nánari upplýsingar um vinnsluna er hægt að nálgast í Pedersen o.fl., 2018 (https://agupubs.onlinelibrary.wiley.com/doi/full/10.1002/2017GL076887) --------------------------------------------------------------------------------------------------------------- A series of orthomosaics using the archives of aerial photographs from Náttúrufræðistofnun (Loftmyndasafn) created between 2013 and 2018 at the Institute of Earth Sciences, as part of two projects: 1 - Measurements of glacier changes from historical aerial photographs. This project was conducted by Joaquín M.C. Belart during his M.Sc. and his Ph.D. at the Institute of Earth Sciences. A selection of aerial photographs from 1945 to 1994 were scanned at Náttúrufræðistofnun specifically for this project. The processing of these aerial photographs was done using Ground Control Points (GCPs) extracted from lidar surveys of Icelandic glaciers. The processing of the data from Drangajökull ice cap was done using the ERDAS software. Further details on the processing are available in Magnússon et al., 2016 (https://tc.copernicus.org/articles/10/159/2016/tc-10-159-2016.html). The processing of the data from other glaciers was done using the MicMac software, also with GCPs extracted from lidar. Further details of the processing are available in Belart et al., 2019 (https://www.cambridge.org/core/journals/journal-of-glaciology/article/geodetic-mass-balance-of-eyjafjallajokull-ice-cap-for-19452014-processing-guidelines-and-relation-to-climate/9B715A9E0413A6345C2B151B1173E71D) and Belart et al., 2020 (https://www.frontiersin.org/articles/10.3389/feart.2020.00163/full) 2 - Measurements of the lava volumes of the Hekla eruptions in the XX century. This project was conducted by Gro B.M. Pedersen as part of the Environmental Mapping and Monitoring of Iceland by Remote Sensing (EMMIRS, financed by Rannís) project between 2015-2018. The aerial photographs of Hekla from 1945 to 1992 were scanned by Náttúrufræðistofnun. The processing of these photographs was done using the ERDAS software, and further details of the processing are available in Pedersen et al., 2018 (https://agupubs.onlinelibrary.wiley.com/doi/full/10.1002/2017GL076887) References: Belart J.M.C., Magnússon E., Berthier E., Pálsson, F., Aðalgeirsdóttir, G., & Jóhannesson, T. (2019). The geodetic mass balance of Eyjafjallajökull ice cap for 1945–2014: Processing guidelines and relation to climate. Journal of Glaciology, 65(251), 395-409. doi:10.1017/jog.2019.16 Belart J.M.C., Magnússon E., Berthier E., Gunnlaugsson Á.Þ., Pálsson F., Aðalgeirsdóttir G., Jóhannesson T, Thorsteinsson T and Björnsson H (2020) Mass Balance of 14 Icelandic Glaciers, 1945–2017: Spatial Variations and Links With Climate. Front. Earth Sci. 8:163. doi: 10.3389/feart.2020.00163 Magnússon, E., Belart, J.M.C., Pálsson, F., Ágústsson, H., and Crochet, P.: Geodetic mass balance record with rigorous uncertainty estimates deduced from aerial photographs and lidar data – Case study from Drangajökull ice cap, NW Iceland, The Cryosphere, 10, 159–177, https://doi.org/10.5194/tc-10-159-2016, 2016. Pedersen, G. B. M., Belart, J. M. C., Magnússon, E., Vilmundardóttir, O. K., Kizel, F., Sigurmundsson, F. S., et al. (2018). Hekla volcano, Iceland, in the 20th century: Lava volumes, production rates, and effusion rates. Geophysical Research Letters, 45, 1805–1813. https://doi.org/10.1002/2017GL076887

  • Categories  

    Nú hafa Náttúrufræðistofnun útbúið vefkort með því að staðsetja og klippa saman hin svokölluðu Herforingjaráðskort. Eftirfarandi lýsing á Herforingjaráðskortum er tekin af vef Landsbókasafns: Á síðasta áratug 19. aldar varð dönskum yfirvöldum ljóst að þau kort sem til voru af Íslandi stæðust ekki þær kröfur sem gera þyrfti í samfélagi þess tíma. Bestu kort af Íslandi sem buðust voru í stórum dráttum byggð á strandmælingum danska sjóhersins sem fram fóru á árunum 1801-1818 annars vegar og hins vegar á kortum Björns Gunnlaugssonar sem byggð voru á fyrrnefndum strandmælingum og eigin mælingum Björns á árunum 1831-1843. Á fjárlögum 1899 voru veittar 5000 krónur og skyldi hefja nýjar þríhyrninga- og strandmælingar á Reykjanesi. Árið 1900 var gefin út í Danmörku tilskipun um að sendur skyldi leiðangur til Íslands til að mæla hér grunnlínu og hnattstöðu. Síðan var ætlunin að mæla þríhyrninganet út frá nýju grunnlínunni. Hingað voru sendir danskir liðsforingjar og sumarið 1900 var unnin ýmis undirbúningsvinna. Árið 1902 höfðu fjárveitingar verið auknar svo að rétt þótti að hefjast handa. Byrjað var á Hornafirði og mælt vestur ströndina og um lágsveitir Suðurlands en uppsveitum og hálendi frestað. Verkinu var svo haldið áfram tvö næstu árin en féll niður 1905 vegna fjárskorts og annarra anna hjá Landmælingadeild danska herforingjaráðsins (Generalstabens topografiske Afdeling) er tókst verkið á hendur. Eftir eins árs bið var þráðurinn tekinn upp að nýju enda bættist nú við fjárstyrkur úr ríkissjóði Dana. Á árunum 1906-1914 var unnið öll sumur, nema 1909, þegar ekkert var aðhafst. Var þá lokið byggðamælingum sunnanlands og mælt um Vesturland, norður og austur um Húnaflóa. Árangurinn var 117 kortblöð af þriðjungi landsins, suður- og vesturhluta, í mælikvarða 1:50.000 (auk nokkurra sérkorta af afmörkuðum svæðum). Þau eru gjarnan nefnd herforingjaráðskortin í höfuðið á þeim sem stóðu fyrir gerð þeirra.

  • Categories  

    [IS] Um er að ræða drónamyndir af Höfn á Hornafirði, teknar 15. júní 2022. Byrjað var klukkan 08:30 og lokið daginn eftir, 16. júní 2022, klukkan 10:30. Myndirnar voru teknar með Zenmuse P1 myndavélum, með upplausn á 3 cm. [EN] This dataset contains drone imagery of Höfn, captured on June 15th, 2022, starting at 08:30 and ending on June 16th, 2022, at 10:30. The imagery was captured using a Zenmuse P1 camera, with an approximate resolution of 3 cm.

  • Categories  

    [IS] Um er að ræða drónamyndir af Hólmavík, teknar 6. júlí 2022. Byrjað var klukkan 19:30 og lokið daginn eftir, 6. júlí 2022, klukkan 20:45. Myndirnar voru teknar með Zenmuse P1 myndavélum, með upplausn á 3 cm. 06.07.2022 19:30 06.07.2022 20:45 [EN] This dataset contains drone imagery of Hólmavík, captured on July 6th, 2022, starting at 19:30 and ending on July 6th, 2022, at 20:45. The imagery was captured using a Zenmuse P1 camera, with an approximate resolution of 3 cm.

  • Categories  

    [IS] Um er að ræða drónamyndir af Akureyril, teknar 10.,13., 18., 20., 26., 30. águst 2021. Myndirnar voru teknar með Zenmuse P1 myndavélum, með 2ja sm. upplausn og varpað yfir í 15 sm. Myndirnar voru teknar af Svarma. [EN] This dataset contains drone imagery of Akureyri, captured on August 10th,13th, 18th, 20th, 26th, 30th 2021. The imagery was captured using a Zenmuse P1 camera, with a sampled approximate resolution of 15 cm. Imagery produced by Svarmi. Upon request 2 cm resolution is available.

  • Categories  

    [IS] Um er að ræða drónamyndir af Búðadal, teknar 1. júní 2022. Byrjað var klukkan 14:40 og lokið daginn eftir, 1. júní 2022, klukkan 15:50. Myndirnar voru teknar með Zenmuse P1 myndavélum, með upplausn á 3 cm. [EN] This dataset contains drone imagery of Búðadalur, captured on June 1st, 2022, starting at 14:40 and ending on June 1st, 2022, at 15:50. The imagery was captured using a Zenmuse P1 camera, with an approximate resolution of 3 cm.

  • Categories  

    [IS] Loftmyndir, sem bandaríski herinn tók á árunum 1956-1961, eru svokallaðar DMA myndir (Defense Mapping Agency). Afrit af filmum DMA myndanna er að finna í loftmyndasafni Náttúrufræðistofnunar (áður Landmælinga Íslands). Árið 2024 voru filmurnar skannaðar af fyrirtækinu Wehrli & Co (í Bandaríkjunum) með 20 míkróna punktstærð og 8-bita dýpt. Staðsetning myndanna var unnin út frá níu kortum í mælikvarðanum 1:250.000. Fluglínur voru upphaflega handteiknaðar á kortin, kortin voru hnitsett og seinna var fluglínunum settar á vektorform, þar sem fyrstu og síðustu myndanúmer hverrar fluglínu voru skráð sem eigindir. Í kjölfariðið var gagnagrunnurinn endurskoðaður með því að rýna skönnuðu myndirnar. Auka upplýsingum var bætt við eigindatöfluna, svo sem dagsetningar ljósmyndanna, brennivídd og flughæð. Fluglínurnar voru einnig flokkaðar eftir staðsetningu og nálægum dagsetningum í eigindinni „svæði“. Hverri fluglínu var umbreytt í punkta, þar sem gert var ráð fyrir að punktarnir væru miðja fyrstu og síðustu mynda fluglínunnar. Staðsetning miðju allra hinna myndanna meðfram viðkomandi fluglínu var línulega áætluð, miðað við að allar myndirnar væru teknar með reglulegu millibili. Áætluð nákvæmni staðsetningar er ± 2 km. [EN] The aerial photographs collected by the US military in 1956-1961 are the so-called Defense Mapping Agency (DMA) images. A copy of the films of the DMA images is available at the archive of aerial photographs of the National Land Survey of Iceland. In 2024, these films were scanned by the company Wehrli & co (in US), at a scanning resolution of 20 microns and 8-bits. The location of these images was extracted by a series of nine maps in 1:250.000 which had hand-drawn the flightlines relative to these images. These maps were georeferenced and the flightlines were digitized into vectors, writing the first and last image numbers of each flightline as attributes. Once this was finished, a revision of the database was made, by inspecting the scanned images. Extra information was added into the table, such as the date of the photographs, the focal length and flight height. The flightlines were also grouped by location and nearby dates, into the attribute "area". Finally, each flightine was converted into points, assuming these points to be the first and last center of the images of the flightline. The location of the center of all the remaining images along a flightline were linearly interpolated, assuming that all the images were taken at regular intervals. The expected accuracy of the geolocation is ± 2 km.

  • Categories  

    [IS] Loftmyndirnar, sem bandaríski herinn safnaði á árunum 1945-1946, eru svokallaðar AMS myndir (American Mapping Service). Afrit af filmum AMS myndanna er að finna í loftmyndasafni Náttúrufræðistofnunar. Árið 2024 voru filmurnar skannaðar af fyrirtækinu Wehrli & Co (í Bandaríkjunum) með á 20 míkróna punktstærð og 8-bita dýpt. Staðsetning myndanna var gerð handvirkt. Hægt er að sjá upphaf og endi fluglína með því að skoða hvernig myndirnar tengjast hver annarri. Auk þess eru upplýsingar (handskrifaðar) á hverja fluglínu, svo sem dagsetning, flughæð og brennivídd linsu. Með því að skoða hverja fluglínu og bera myndirnar innan fluglínunnar saman við mósaík af myndum (Maxar mósaík) var búinn til vektor þar sem miðja fyrstu og síðustu myndanna var staðsett. Ef margar myndanna voru mjög skýjaðar var þeirri fluglínu skipt niður í marga hluta og skýjuðu myndirnar fjarlægðar. Nokkrum eigindum var bætt við fitjurnar, svo sem dagsetningu myndatöku, myndanúmeri við upphaf og enda fluglínu, brennivídd linsu og flughæð. Að lokum var framkvæmd brúun (e. interpolation) til að ákvarða staðsetningu mynda innan hverrar fluglínu. Þetta byggist á staðsetningu fyrstu og síðustu myndar fluglínunnar og er gengið út frá því að allar myndirnar hafi verið teknar með reglulegu millibili. Áætluð nákvæmni staðsetningar er ± 2 km. [EN]: The aerial photographs collected by the US military in 1945-1946 are the so-called American Mapping Service (AMS) images. A copy of the films of the AMS images is available at the archive of aerial photographs of the National Land Survey of Iceland. In 2024, these films were scanned by the company Wehrli & co (in US), at a scanning resolution of 20 microns and 8-bits. The location of these images was extracted by manual and visual inspection of the scanned images. The start and end of a flightline can be seen visually by identifying which images are connected with each other. Besides this, the beginning and the end of each flightlines have hand-written a series of information of the flightline, such as the date, flight height and focal length. By visually inspecting each flightline, and comparing the images within a flightline with a generic mosaic of images (Maxar mosaic), we digitized a vector with the location of the first and last center of the images of each flightline with georeferenced coordinates. In some cases, if the flightline contained multiple images only containing clouds, the cloudy images were discarded and the flightline was split into multiple segments. We wrote several attributes into these features, such as the date of acquisition, image number of the start and end of the flightline, focal length and flight height. Once this process was finished, the location of the images within each flightline was linearly interpolated based on the location of the first and last image of the flightline, assuming that all the images were taken at a regular interval. The expected accuracy of the geolocation is ± 2 km.