From 1 - 10 / 12
  • Categories  

    Gögnin innhalda staðsetningu veðurstöðva sem eru í eigu Vegagerðarinnar og staðsettar eru við þjóðvegi en einnig veðurstöðvar í eigu Veðurstofunnar og annarra.

  • Categories  

    Vefþjónustan sýnir útlínur og aðrar upplýsingar um helstu snjóflóð sem að starfsmenn Veðurstofunnar hafa kortlagt. Útlínur eru ýmist mældar með GPS, hnitaðar út frá ljósmyndum og/eða lýsingum. Nákvæmni gagnanna er birt með mismunandi táknum. Upplýsingar um útbreiðslu nýtast við gerð snjóflóðaannála og aðgerða til varnar snjóflóðum hvort sem um er að ræða rýmingar eða gerð varnarvirkja. Gagnasafnið nýtist einnig við keyrslu snjóflóðalíkana og við gerð hættumats. Gagnasafnið var síðast uppfært í janúar 2023.

  • Categories  

    Svæða-, staðar- og farvegaskipting fyrir ofanflóð í samræmi við ofanflóðaskráningarkerfi Veðurstofu Íslands. Um er að ræða stigskiptingu (hierarchy) þar sem landinu er skipt niður í staði, hverjum stað svo niður í svæði og innan svæða eru svo afmarkaðir algengir farvegir ofanflóða.

  • Categories  

    Vefþjónustan inniheldur upplýsingar um hættusvæði, jafnáhættulínur og mörk hættumetins svæðis fyrir nokkra þéttbýliskjarna. Nánari upplýsingar fást á vef VÍ (https://www.vedur.is/ofanflod/haettumat). Útgefið hættumatskort gildir ef misræmi er á milli þess og vefþjónustunnar.

  • Categories  

    Þjónustan sýnir rýmingarreiti á þéttbýlisstöðum landsins þar sem talin er snjóflóðahætta. Reitaskiptinguna hefur Veðurstofan gert í samráði við heimamenn, og birt á sérstökum kortum og byggja rýmingaráætlanir staðanna á þessari reitaskiptingu. Samkvæmt lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (49/1997) ber Veðurstofu Íslands að gefa út viðvaranir um staðbundna snjóflóðahættu. Skal þá rýma húsnæði á reitum sem tilgreindir eru í viðvörun Veðurstofunnar.

  • Categories  

    Vefþjónustan inniheldur upplýsingar um hverja snjóflóðaútlínu sem hægt er að birta í snjóflóðaskýrslu í gegnum Ofanflóðakortasjá VÍ og skal einvörðungu nota þar. Gagnasafnið var síðast uppfært í janúar 2023.

  • Categories  

    [IS] Um er að ræða rastergögn sem sýna árlegar mögulegar uppsafnaðar sólarstundir út frá landslagi á Íslandi yfir heilt ár og eru gögnin unnin úr IslandsDEM, 10 m hæðarlíkaninu í EPSG:8088. Rastergögnin byggja á hermun á landslagskuggum, þar sem útreikningar voru gerðir fyrir hvern klukkutíma á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2027 með tímabeltinu Atlantic/Reykjavik miðað við að dagsbirta sé til staðar þegar sólin er allt að 6 gráður undir sjóndeildarhring. Gildi pixla gefa til kynna fjölda hermdra tímapunkta þar sem viðkomandi staður var skilgreindur sem sólríkur; hærri gildi tákna því tíðara sólskin yfir árið. Skýjahula og aðrir þættir en landslag eru ekki teknir með í útreikningana. [EN] Annual theoretical maximum cumulative sunlight raster for Iceland based on terrain and topological features, generated from the IslandsDEM 10 m DEM in EPSG:8088. The raster summarizes hourly terrain-shadow simulations from 1 January to 31 December 2027, using the Atlantic/Reykjavik timezone and a civil twilight threshold of 6 degrees below the horizon. Pixel values indicate the number of simulated time steps in which each location was classified as sunlit; higher values represent more frequent sunlight occurrence during the year. Clouds and other factors beside terrain are not taken into account.

  • Categories  

    EN This shadow map illustrates terrain-induced shadows at 17:45 on August 12th, 2026. The solar eclipse will not be visible within the shaded areas. Shadow coverage may vary depending on the simulation resolution and the specific time. IS Skuggakortið sýnir staði þar sem skuggar falla klukkan 17:45 þann 12. ágúst 2026. Sólmyrkvinn mun ekki sjást á þeim svæðum sem eru í skugga. Skuggasvæðin geta verið breytileg vegna upplausnar hæðarkortsins og á öðrum tímum.

  • Categories  

    The Conservation of Arctic Flora and Fauna (CAFF) is the biodiversity working group of the Arctic Council. The CAFF Kortasjá represents data from CAFF and from their GeoCatalog (https://geo.abds.is/) More info on their website https://www.caff.is/

  • Categories  

    IS: Umbrotasjá sýnir landupplýsingar sem tengjast jarðhræringum t.d. á Reykjanesskaga. Myndirnar og gögnin sem er að finna í Umbrotasjá voru útbúin af hópi sérfræðinga frá Landmælingum Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands. Myndirnar voru unnar á hraða samkvæmt neyðarástandi og gerðar aðgengilegar á Umbrotasjá fyrir vísindasamfélagið og ákvörðunaraðila aðeins nokkrum klukkustundum eftir að mælingum lauk. Niðurstöður þessarar vinnu hjálpa til við að útbúa hættumat vegna eldgossins og stjórnun aðgengis að svæðinu. Heimild: Náttúrufræðistofnun. Dagsetning myndar. umbrotasja.gis.is. [Gagnategund]. EN: The Volcano Viewer (Icelandic: Umbrotasjá) shows geographical data in connection with the current volcanic unrest on Reykjanes peninsula, SW Iceland. The images and data in Volcano Viewer were created by a group of specialists at the Institute of Nature Research (Náttúrufræðistofnun), the Icelandic Institute of Natural History (Náttúrufræðistofnun Íslands), the University of Iceland (Háskóli Íslands), and the Icelandic Meterological Office (Veðurstofa Íslands). The images were created in near real-time in rapid emergency mode as the events unfold and made available to the scientific community and decision-makers just hours after the data are acquired. The results of this project aid in the creation of volcanic hazard maps and control access to the area. Citation: Natural Science Institute of Iceland [Náttúrufræðistofnun]. Imagery date. umbrotasja.gis.is. [data type].