From 1 - 10 / 11
  • Categories  

    Vefþjónustan sýnir útlínur og aðrar upplýsingar um helstu snjóflóð sem að starfsmenn Veðurstofunnar hafa kortlagt. Útlínur eru ýmist mældar með GPS, hnitaðar út frá ljósmyndum og/eða lýsingum. Nákvæmni gagnanna er birt með mismunandi táknum. Upplýsingar um útbreiðslu nýtast við gerð snjóflóðaannála og aðgerða til varnar snjóflóðum hvort sem um er að ræða rýmingar eða gerð varnarvirkja. Gagnasafnið nýtist einnig við keyrslu snjóflóðalíkana og við gerð hættumats. Gagnasafnið var síðast uppfært í janúar 2023.

  • Categories  

    Svæða-, staðar- og farvegaskipting fyrir ofanflóð í samræmi við ofanflóðaskráningarkerfi Veðurstofu Íslands. Um er að ræða stigskiptingu (hierarchy) þar sem landinu er skipt niður í staði, hverjum stað svo niður í svæði og innan svæða eru svo afmarkaðir algengir farvegir ofanflóða.

  • Categories  

    Vefþjónustan inniheldur upplýsingar um hættusvæði, jafnáhættulínur og mörk hættumetins svæðis fyrir nokkra þéttbýliskjarna. Nánari upplýsingar fást á vef VÍ (https://www.vedur.is/ofanflod/haettumat). Útgefið hættumatskort gildir ef misræmi er á milli þess og vefþjónustunnar.

  • Categories  

    Vefþjónustan inniheldur upplýsingar um hverja snjóflóðaútlínu sem hægt er að birta í snjóflóðaskýrslu í gegnum Ofanflóðakortasjá VÍ og skal einvörðungu nota þar. Gagnasafnið var síðast uppfært í janúar 2023.

  • Categories  

    Gögnin innhalda staðsetningu veðurstöðva sem eru í eigu Vegagerðarinnar og staðsettar eru við þjóðvegi en einnig veðurstöðvar í eigu Veðurstofunnar og annarra.

  • Categories  

    The Conservation of Arctic Flora and Fauna (CAFF) is the biodiversity working group of the Arctic Council. The CAFF Kortasjá represents data from CAFF and from their GeoCatalog (https://geo.abds.is/) More info on their website https://www.caff.is/

  • Categories  

    EN This shadow map illustrates terrain-induced shadows at 17:45 on August 12th, 2026. The solar eclipse will not be visible within the shaded areas. Shadow coverage may vary depending on the simulation resolution and the specific time. IS Skuggakortið sýnir staði þar sem skuggar falla klukkan 17:45 þann 12. ágúst 2026. Sólmyrkvinn mun ekki sjást á þeim svæðum sem eru í skugga. Skuggasvæðin geta verið breytileg vegna upplausnar hæðarkortsins og á öðrum tímum.

  • Categories  

    Þjónustan sýnir rýmingarreiti á þéttbýlisstöðum landsins þar sem talin er snjóflóðahætta. Reitaskiptinguna hefur Veðurstofan gert í samráði við heimamenn, og birt á sérstökum kortum og byggja rýmingaráætlanir staðanna á þessari reitaskiptingu. Samkvæmt lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (49/1997) ber Veðurstofu Íslands að gefa út viðvaranir um staðbundna snjóflóðahættu. Skal þá rýma húsnæði á reitum sem tilgreindir eru í viðvörun Veðurstofunnar.

  • Categories  

    [IS] Um er að ræða rastergögn sem sýna árlegar mögulegar uppsafnaðar sólarstundir út frá landslagi á Íslandi yfir heilt ár og eru gögnin unnin úr IslandsDEM, 10 m hæðarlíkaninu í EPSG:8088. Rastergögnin byggja á hermun á landslagskuggum, þar sem útreikningar voru gerðir fyrir hvern klukkutíma á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2027 með tímabeltinu Atlantic/Reykjavik miðað við að dagsbirta sé til staðar þegar sólin er allt að 6 gráður undir sjóndeildarhring. Gildi pixla gefa til kynna fjölda hermdra tímapunkta þar sem viðkomandi staður var skilgreindur sem sólríkur; hærri gildi tákna því tíðara sólskin yfir árið. Skýjahula og aðrir þættir en landslag eru ekki teknir með í útreikningana. [EN] Annual theoretical maximum cumulative sunlight raster for Iceland based on terrain and topological features, generated from the IslandsDEM 10 m DEM in EPSG:8088. The raster summarizes hourly terrain-shadow simulations from 1 January to 31 December 2027, using the Atlantic/Reykjavik timezone and a civil twilight threshold of 6 degrees below the horizon. Pixel values indicate the number of simulated time steps in which each location was classified as sunlit; higher values represent more frequent sunlight occurrence during the year. Clouds and other factors beside terrain are not taken into account.

  • Categories  

    [IS] Veðurstofa Íslands geymir gögn um sprungusvæði fyrir 24 íslenska jökla. Kortlagning sprungusvæða er að mestu leyti byggð á gervihnattamyndum og loftmyndum teknum síðsumars og fram á haust þegar snjóþekja er minni. Hæðarlíkön, sigkatlar í yfirborði jökla og þekktar ferðaleiðir og leiðarferlar eru einnig hafðir til hliðsjónar. Notaðar eru útlínur jökla haustið 2025 og jökulsker eru einnig sýnd. Um er að ræða vektorgögn og kortin sýna 3 flokka af sprungusvæðum: 1. lítið sprunginn jökull, 2. mjög sprunginn jökull, 3. breiðar sprungur og mjög hættuleg svæði, og staðsetningu þeirra. Gögnin eru uppfærð á nokkurra ára festi, núverandi útgáfa er frá árinu 2025. Tekið er á móti upplýsingum um nýjar sprungur á netfanginu jokulsprungur@vedur.is Sprungukortin eru ætluð aðeins til hliðsjónar fyrir jöklaferðalanga en ábyrgð liggur ætíð í höndum þeirra sem ferðast á jökli, en aðstæður geta breyst fyrirvaralaust. Gögn: Loftmyndir frá Náttúrufræðistofnun og Loftmyndum ehf., SPOT 5 gervitunglamyndir (2002−2008), LIDAR hæðarlíkön (2008−2012), Pléiades gervitunglamyndir (2021−2025), Sentinel-2A gervitunglamyndir (2025), og skámyndir úr flugi frá sumri og hausti 2010−2012. Nánari upplýsingar: https://safetravel.is/outdoors/crevasse-maps/ [EN] The Icelandic Meteorological Office hosts a data set on glacier crevasse areas of 24 Icelandic glaciers. The crevasse area mapping is based on satellite and aerial imagery of late summer and fall when the glaciers have least amount of snow cover. DEMs, glacier cauldrons and known travel tracks are also used as reference. The glacier outlines of 2025 are used, and nunataks are also shown. The vector file shows glacier areas that fall into three different categories of crevassed areas: 1. areas with small crevasses, 2. very crevassed areas, 3. wide crevasses and very dangerous areas. The data set is updated every other year approximately and the current version is from the year 2025. Information about new crevasses can be forwarded to the following email: jokulsprungur@vedur.is. The crevasse maps are intended as guidelines for glacier travels, conditions can change fast, travel at own risk. Data: Aerial images from the Natural Science Institute of Iceland, Loftmyndir ehf, SPOT 5 satellite images (2002−2008), LIDAR DEMs (2008−2012), Pléiades satellite images (2021−2025), Sentinel-2A satellite images(2025), and oblique photographs from aerial surveys in the summers and fall of 2010−2012. Further information: https://safetravel.is/outdoors/crevasse-maps/