From 1 - 10 / 30
  • Categories  

    Þjónustan sýnir rýmingarreiti á þéttbýlisstöðum landsins þar sem talin er snjóflóðahætta. Reitaskiptinguna hefur Veðurstofan gert í samráði við heimamenn, og birt á sérstökum kortum og byggja rýmingaráætlanir staðanna á þessari reitaskiptingu. Samkvæmt lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (49/1997) ber Veðurstofu Íslands að gefa út viðvaranir um staðbundna snjóflóðahættu. Skal þá rýma húsnæði á reitum sem tilgreindir eru í viðvörun Veðurstofunnar.

  • Categories  

    Útlínur dregnar á grundvelli háupplausnarlandlíkana sem mæld voru með leysimælitækum úr flugvél á árunum 2007 til 2013.

  • Categories  

    Útlínur dregnar eftir Landsat 1 gervihnattamyndum frá 1973 og tiltækum uppréttum loftmyndum úr safni Náttúrufræðistofnunar frá áttunda áratug 20. aldar. Útlínur nokkurra jökla voru dregnar eftir Hexagon KH9 gervihnattamyndum.

  • Categories  

    Vefþjónustan sýnir útlínur og aðrar upplýsingar um helstu snjóflóð sem að starfsmenn Veðurstofunnar hafa kortlagt. Útlínur eru ýmist mældar með GPS, hnitaðar út frá ljósmyndum og/eða lýsingum. Nákvæmni gagnanna er birt með mismunandi táknum. Upplýsingar um útbreiðslu nýtast við gerð snjóflóðaannála og aðgerða til varnar snjóflóðum hvort sem um er að ræða rýmingar eða gerð varnarvirkja. Gagnasafnið nýtist einnig við keyrslu snjóflóðalíkana og við gerð hættumats. Gagnasafnið var síðast uppfært í janúar 2023.

  • Categories  

    Útlínur dregnar eftir uppréttum Sentinel-2 gervihnattamyndum. Uppréttar loftmyndir frá Loftmyndum ehf. og Landsat 8 gervihnattamyndir voru einnig notaðar á nokkrum stöðum.

  • Categories  

    Staðsetning íslenskra jökla ásamt nafni og GLIMS auðkenni. Útlínur dregnar eftir uppréttum Sentinel-2 og Pléiades gervihnattamyndum ásamt loftmyndum frá Loftmyndum ehf. á stöku stað. Útlínur hafa verið mældar í kringum 1890, 1945-1946, 1970-1980, 1998-2004, 2007-2013, 2014, 2017, 2019, 2021, 2023 og 2025 og öll lögin er að finna í þjónustum Veðurstofnunnar.

  • Categories  

    Útlínur byggðar á kortlagningu á jökulgarða og annarra landforma sem jöklar skilja eftir. Einnig er byggt á rituðum heimildum, frásögnum heimamanna og ferðafólks, ljósmyndum og öðrum tiltækum gögnum. Um er að ræða niðurstöður margra rannsóknarhópa. Flestir jöklar náðu hámarksútbreiðslu í kringum 1890, en meðal undantekninga frá því er Drangajökull sem náði mestri útbreiðslu um miðja 19. öld.

  • Categories  

    Staðsetning á sigkötlum á íslenskum jöklum. Staðsetning byggir á upplýsingum frá Jarðvísindastofnun Háskólan Íslands.

  • Categories  

    Lagið sýnir helstu vatnaskil á Reykjanesskaga. Gögn eru frá VÍ og eru uppfærð eftir þörfum.

  • Categories  

    Vefþjónustan inniheldur upplýsingar um hverja snjóflóðaútlínu sem hægt er að birta í snjóflóðaskýrslu í gegnum Ofanflóðakortasjá VÍ og skal einvörðungu nota þar. Gagnasafnið var síðast uppfært í janúar 2023.