From 1 - 10 / 32
  • Categories  

    Strengja lagið inniheldur línulag sem sýnir staðsetningu jarðstrengja og sæstrengja sem hafa rekstrarspennu hærri en 33 kV. Allir strengirnir eru GPS hnitaðir.

  • Categories  

    OR_fraveita er byggt upp af línum (lögnum), punktum (búnaði) og flákum (settjörnum).

  • Categories  

    Um er að ræða punktalag sem sýnir flest háspennumöstur sem eru í flutningskerfi Landsnets. Stærsti hluti punktalagsins er GPS hnitaður en annars er hnitað eftir loftmyndum þar sem upplausn loftmyndanna er nægileg.

  • Categories  

    Háspennulínulagið er línulag sem sýnir legu helstu háspennulína landsins. Gögnin innihalda m.a. upplýsingar um flokkun háspennulína.

  • Categories  

    [IS] Í Rammasjá er hægt að skoða gögn sem tengjast áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, þ.e.a.s. Rammaáætlun. [EN] The Master Plan for Nature Protection and Energy Utilization Map

  • Categories  

    Þekjan sýnir raforkudreifisvæði fyrir dreififyrirtæki landsins: Veitur, Orkubú Vestfjarða, HS Veitur, Norðurorka og RARIK. Hjá Orkubú Vestfjarða og RARIK er svæðunum einnig skipt upp í dreifbýli, þéttbýli og byggðarkjarna sem endurspeglar skiptingu í gjaldskrá hjá þessum fyrirtækjum.

  • Categories  

    Árið 2013 lá hjá Mannviti listi yfir helstu ferðamannastaði í hverjum landshluta frá Ferðamálastofu sem var yfirfarinn af ferðamálafulltrúum á hverju svæði. Að auki var notast við kannanir Ferðamálastofu meðal erlendra og íslenskra ferðamanna þar sem spurt var hvaða svæði/staði þeir heimsóttu á ferðalagi sínu um landið.

  • Categories  

    Tölur varðandi fastanettengingar fasteigna á öllu landinu innan 100 x 100 metra reita. Gögnin sýna ekki hvaða tengingu fasteignir eru að nýta heldur hverjar þeirra tengst í gegnum ADSL, VDSL og ljósleiðara. Gögnin sýna einnig hver á þá strengi sem hægt er að tengjast í gegn um. Mögulegur hámarkshraði tenginga er áætlaður fyrir fasteignir.

  • Categories  

    Gögnin innihalda hnitsett útbreiðslusvæði talþjónustu eða GSM og 3G á vegum Símans, Nova og Vodafone sem og 4G á vegum Nova. Sýnd eru þau svæði þar sem líklegast er að ná nýtanlegu merki. Gera þarf ráð fyrir að t.d. veður, landslag og aðrir hugsanlegir utanaðkomandi þættir geti haft áhrif á dreifingu fjarskiptamerkja til eða frá. Merki dofnar þegar símtæki er inni í bíl eða inni í húsi, því fjær veggjum eða þaki sem tækið er, því lakara merki næst. Þannig næst merki yfirleitt síst inni í miðju húsi og niðri í kjallara. Móttaka getur verið mismunandi milli símtækja, þ.e. loftnet símtækja og staðsetning þeirra í tækinu getur verið mjög mismunandi. Spáin er styrkleikaskipt: - Styrkur 1: Sterkt merki, jafnan hægt að njóta viðkomandi tækni ofanjarðar innanhúss með góðu móti. - Styrkur 2: Miðlungs sterkt merki, í einhverjum tilfellum má búast við döpru sambandi innanhúss, hins vegar ætti samband að vera nægilega gott utanhúss. - Styrkur 3: Veikt merki, búast má við slitróttu sambandi utanhúss og mjög döpru eða engu sambandi innanhúss.

  • Categories  

    Fjarskiptastofa hefur upplýsingar um farnetsenda, GSM senda, TETRA senda, DVB-T senda, FM senda, örbylgjusenda og ýmis önnur fjarskiptamannvirki. Upplýsingar innihalda a.m.k staðsetningu fjarskiptamannvirkja. Flestar upplýsingar eru til um farnet- og GSM senda.