From 1 - 6 / 6
  • Categories  

    Svæði þar sem þrívíddarskráning hefur farið fram á fornleifum

  • Categories  

    Gagnasett sem sýnir uppmælingar annarra minjar skráðar samkvæmt stöðlum Minjastofnunar Íslands. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Minjastofnun

  • Categories  

    Þetta gagnasett sýnir skiptingu landsins í 8 minjasvæði, Höfuðborgarsvæðið, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland og Reykjanes. Á hverju minjasvæði er ein starfsstöð, að Vestfjörðum, Reykjanesskaga og Suðurlandi undanskildum en þar eru ekki starfsstöðvar. Minjaverðir starfa hver á sínu minjasvæði og eru því megintengiliðir við íbúa svæðisins og aðra hagsmunaaðila. Aðalskrifstofa Minjastofnunar Íslands er á Suðurgötu 39 í Reykjavík. Á aðalskrifstofu stofnunarinnar starfar þorri starfsmanna, en einn til tveir starfsmenn eru á starfsstöðvum á öðrum minjasvæðum.

  • Categories  

    Þetta gagnasett er unnið upp úr örnefnagrunni Náttúrufræðistofnunar og er í því að finna upplýsingar um örnefni sem þykja vera vísbending um fornleifar.

  • Categories  

    Þetta gagnasett inniheldur upplýsingar um friðhelgi uppmældra fornleifa sem skilað hefur verið inn til Minjastofnunar Íslands. Gagnasettið sýnir jöðrun í kringum staðsetningar fornleifa sem er áætluð friðhelgi þeirra, 15 metrar fyrir friðaðar fornleifar og 100 metrar fyrir friðlýstar fornleifar. Þar sem friðhelgin er aðeins áætlað uppfyllir hún ekki skilyrði til skipulagsgerðar eða í tengslum við framkvæmdir heldur eingöngu til viðmiðunar. Athugið að gagnasettið er ekki tæmandi yfirlit um fornleifar, hús og mannvirki á Íslandi, sem njóta verndar samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012.

  • Categories  

    Þetta gagnasett inniheldur upplýsingar um skráðar fornleifar sem skilað hefur verið inn til Minjastofnunar Íslands. Þau gögn sem hér birtast hafa ekki verið yfirfarin af starfsfólki Minjastofnunar Íslands og uppfylla því ekki skilyrði til skipulagsgerðar eða í tengslum við framkvæmdir heldur eingöngu til viðmiðunar. Ekki er gerður greinarmunur á friðuðum og friðlýstum fornleifum í gagnasettinu. Athugið að gagnasettið er ekki tæmandi yfirlit um fornleifar, hús og mannvirki á Íslandi, sem njóta verndar samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012.