From 1 - 10 / 20
  • Categories  

    Upplýsingar um sprungur sem finnast á Reykjanesskaga. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Veðurstofu Íslands

  • Categories  

    Gögnin sýna upplýsingar um alla jarðskjálfta á Íslandi. Nánari upplýsingar á https://skjalftalisa.vedur.is

  • Categories  

    Skoðunarþjónustur Veðurstofu Íslands.

  • Categories  

    Staðsetning íslenskra jökla ásamt nafni og GLIMS auðkenni. Útlínur dregnar eftir uppréttum Sentinel-2 og Pléiades gervihnattamyndum ásamt loftmyndum frá Loftmyndum ehf. á stöku stað. Útlínur hafa verið mældar í kringum 1890, 1945-1946, 1970-1980, 1998-2004, 2007-2013, 2014, 2017, 2019, 2021, 2023 og 2025 og öll gagnalögin er að finna í þjónustum Veðurstofnunnar.

  • Categories  

    Útlínur hnitaðar af AMS kortum bandaríska hersins sem byggja á loftmyndum frá árunum 1945 og 1946. Útlínurnar hafa verið uppfærðar á nokkrum stöðum með skönnuðum, uppréttum loftmyndum úr safni Náttúrufræðistofnunar.

  • Categories  

    Útlínur dregnar eftir Landsat og SPOT-5 gervihnattamyndum, uppréttum loftmyndum frá Loftmyndum ehf. og skáflugmyndum.

  • Categories  

    Útlínur byggðar á kortlagningu á jökulgarða og annarra landforma sem jöklar skilja eftir. Einnig er byggt á rituðum heimildum, frásögnum heimamanna og ferðafólks, ljósmyndum og öðrum tiltækum gögnum. Um er að ræða niðurstöður margra rannsóknarhópa. Flestir jöklar náðu hámarksútbreiðslu í kringum 1890, en meðal undantekninga frá því er Drangajökull sem náði mestri útbreiðslu um miðja 19. öld.

  • Categories  

    Vefþjónustan inniheldur upplýsingar um hættusvæði, jafnáhættulínur og mörk hættumetins svæðis fyrir nokkra þéttbýliskjarna. Nánari upplýsingar fást á vef VÍ (https://www.vedur.is/ofanflod/haettumat). Útgefið hættumatskort gildir ef misræmi er á milli þess og vefþjónustunnar.

  • Categories  

    Vefþjónustan inniheldur upplýsingar um hverja snjóflóðaútlínu sem hægt er að birta í snjóflóðaskýrslu í gegnum Ofanflóðakortasjá VÍ og skal einvörðungu nota þar. Gagnasafnið var síðast uppfært í janúar 2023.

  • Categories  

    Útlínur dregnar á grundvelli háupplausnarlandlíkana sem mæld voru með leysimælitækum úr flugvél á árunum 2007 til 2013.