Vefkort
Type of resources
Available actions
Topics
Keywords
Contact for the resource
Provided by
Formats
Representation types
Update frequencies
status
Scale
-
Um er að ræða vefkort sem var útbúið með því að staðsetja og klippa saman hin svokölluðu Herforingjaráðskort. Eftirfarandi lýsing á Herforingjaráðskortum er tekin af vef Landsbókasafns: Á síðasta áratug 19. aldar varð dönskum yfirvöldum ljóst að þau kort sem til voru af Íslandi stæðust ekki þær kröfur sem gera þyrfti í samfélagi þess tíma. Bestu kort af Íslandi sem buðust voru í stórum dráttum byggð á strandmælingum danska sjóhersins sem fram fóru á árunum 1801-1818 annars vegar og hins vegar á kortum Björns Gunnlaugssonar sem byggð voru á fyrrnefndum strandmælingum og eigin mælingum Björns á árunum 1831-1843. Á fjárlögum 1899 voru veittar 5000 krónur og skyldi hefja nýjar þríhyrninga- og strandmælingar á Reykjanesi. Árið 1900 var gefin út í Danmörku tilskipun um að sendur skyldi leiðangur til Íslands til að mæla hér grunnlínu og hnattstöðu. Síðan var ætlunin að mæla þríhyrninganet út frá nýju grunnlínunni. Hingað voru sendir danskir liðsforingjar og sumarið 1900 var unnin ýmis undirbúningsvinna. Árið 1902 höfðu fjárveitingar verið auknar svo að rétt þótti að hefjast handa. Byrjað var á Hornafirði og mælt vestur ströndina og um lágsveitir Suðurlands en uppsveitum og hálendi frestað. Verkinu var svo haldið áfram tvö næstu árin en féll niður 1905 vegna fjárskorts og annarra anna hjá Landmælingadeild danska herforingjaráðsins (Generalstabens topografiske Afdeling) er tókst verkið á hendur. Eftir eins árs bið var þráðurinn tekinn upp að nýju enda bættist nú við fjárstyrkur úr ríkissjóði Dana. Á árunum 1906-1914 var unnið öll sumur, nema 1909, þegar ekkert var aðhafst. Var þá lokið byggðamælingum sunnanlands og mælt um Vesturland, norður og austur um Húnaflóa. Árangurinn var 117 kortblöð af þriðjungi landsins, suður- og vesturhluta, í mælikvarða 1:50.000 (auk nokkurra sérkorta af afmörkuðum svæðum). Þau eru gjarnan nefnd herforingjaráðskortin í höfuðið á þeim sem stóðu fyrir gerð þeirra.
-
Vefkort sem sýnir mörk landshluta og sveitarfélaga. Mörk sveitarfélaga á Íslandi hafa tekið miklum breytingum á sl. 120 árum. Náttúrufræðistofnun hafa skrásett þessar breytingar og hægt er að sjá þær í Sveitarfélagasjá. Þar er hægt að skoða stöðu sveitarfélaganna frá 1904, sem eru elstu heimildir sem LMÍ hefur.
-
Kortið var útbúið til fyrir grunngerð landupplýsinga sem bakgrunnur í kortaglugga og skyggi ekki á þau gögn sem lögð eru ofaná. Uppruni kortsins var úr nokkrum áttum. LMÍ Hæðarlíkan 2016 var notað bæði til þess að lita undirlagið, en hæðarskyggingin var einnig unnin úr því. CORINE var notað til að gefa hugmyndir um yfirborð lands. Vatnafarsgögn úr Euro Global Map voru notuð í smærri skölum, en eftir því sem þysjað er inn taka önnur gögn við. I5 50V gögnin, vatnafar og hæðarlínur, fara að birtast þegar þysjað er inn í stærri skala. Dýpislínur frá Landhelgisgæslu Íslands eru birtar í öllum þysjunarstigum. Til að tengja þjónustuna við QGIS þarf að fara eftir leiðbeiningum sem eru á smámyndunum sem fylgja þessari skráningu.
-
Uppruni gagna vefkorts NÁTT er úr nokkrum áttum. Landhæðalíkan NÁTT er notað bæði til þess að lita undirlagið, en hæðarskyggingin er einnig unnin úr því. CORINE er notað til að gefa hugmyndir um yfirborð lands. Vatnafars gögn úr Euro Global Map eru notuð í smærri skölum, en eftir því sem þysjað er inn taka önnur gögn við. Stærstur hluti gagnanna kemur þó úr IS 50V, en þar ber að nefna samgöngur, mannvirki, vatnafar og hæðarlínur. IS 50V gagnasettin birtast mestmegnis í stærri skölum að frá töldu samgöngu línunum sem eru með frá skalanum 1:3.000.000. Dýpislínur frá Landhelgisgæslu Íslands eru birtar í öllum þysjunarstigum. Til að tengja þjónustuna við QGIS þarf að fara eftir leiðbeiningum sem eru á smámyndunum sem fylgja þessari skráningu.
-
Safn skannaðra Íslandskorta í kvarðanum 1:100.000, svokölluð Atlaskort gerð af landmælingadeild danska herforingjaráðsins á fyrstu fjórum áratugum 20. aldarinnar, en seinast uppfærð árið 1989. Uppréttar GeoTIFF myndir sem varpað var úr VisIT hugbúnaðinum þegar kortin voru gefin út á diskum. Til að tengja þjónustuna við QGIS þarf að fara eftir leiðbeiningum sem eru á smámyndunum sem fylgja þessari skráningu. Hægt er að ná í kortið sem er notað í þjónustuna á Geoserver LMÍ. Sjá tengil hér fyrir neðan.
Lýsigagnagátt