Landslag
Type of resources
Available actions
Topics
Keywords
Contact for the resource
Provided by
Representation types
Update frequencies
status
Scale
-
[IS] Um er að ræða rastergögn sem sýna árlegar mögulegar uppsafnaðar sólarstundir út frá landslagi á Íslandi yfir heilt ár og eru gögnin unnin úr IslandsDEM, 10 m hæðarlíkaninu í EPSG:8088. Rastergögnin byggja á hermun á landslagskuggum, þar sem útreikningar voru gerðir fyrir hvern klukkutíma á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2027 með tímabeltinu Atlantic/Reykjavik miðað við að dagsbirta sé til staðar þegar sólin er allt að 6 gráður undir sjóndeildarhring. Gildi pixla gefa til kynna fjölda hermdra tímapunkta þar sem viðkomandi staður var skilgreindur sem sólríkur; hærri gildi tákna því tíðara sólskin yfir árið. Skýjahula og aðrir þættir en landslag eru ekki teknir með í útreikningana. [EN] Annual theoretical maximum cumulative sunlight raster for Iceland based on terrain and topological features, generated from the IslandsDEM 10 m DEM in EPSG:8088. The raster summarizes hourly terrain-shadow simulations from 1 January to 31 December 2027, using the Atlantic/Reykjavik timezone and a civil twilight threshold of 6 degrees below the horizon. Pixel values indicate the number of simulated time steps in which each location was classified as sunlit; higher values represent more frequent sunlight occurrence during the year. Clouds and other factors beside terrain are not taken into account.
-
[IS] Landslagsstöðuvísir eða TPI gögnin lýsa því hvort tiltekinn staður liggur hærra eða lægra en næsta nágrenni hans. TPI var reiknað út frá 10 m ÍslandsDEM með GDAL-aðgerðinni `raster tpi`. Neikvæð gildi, svo sem -1, gefa til kynna landslag sem liggur lægra en nærliggjandi svæði, til dæmis dali, farvegi eða lægðir. Gildi nálægt 0 gefa til kynna tiltölulega jafnt eða flatt landslag. Jákvæð gildi, svo sem 1, gefa til kynna landslag sem er hærra en umhverfið, til dæmis hryggi, hæðartoppa eða kúpt landslag. TPI má nota til að styðja við flokkun landforma, landslagsgreiningu og túlkun á staðbundnum breytileika í landslagi. Fleiri upplýsingar má finna hér: https://gdal.org/en/stable/programs/gdal_raster_tpi.html [EN] Topographic Position Index (TPI) describes whether a location is higher or lower than its immediate surroundings. It was calculated from the 10 m ÍslandsDEM using GDAL raster tpi. Negative values, such as -1, indicate terrain lower than the surrounding area, often valleys, channels, or depressions. Values around 0 indicate relatively even or flat terrain. Positive values, such as 1, indicate terrain higher than the surroundings, such as ridges, hilltops, or convex landforms. TPI can be used to support landform classification, landscape analysis, and interpretation of local terrain variation. More info: GDAL TPI: https://gdal.org/en/stable/programs/gdal_raster_tpi.html
-
[IS] TRI gögnin lýsa staðbundnum breytileika og hrjúfleika landslags með því að mæla hæðarmun milli hvers rasterreits og reitanna í næsta nágrenni. TRI var reiknað út frá 10 m ÍslandsDEM með GDAL-aðgerðinni `raster tri`. Lág gildi, nálægt 0, gefa til kynna slétt eða tiltölulega einsleitt landslag. Hærri gildi gefa til kynna aukinn hæðarmun og hrjúfara landslag, til dæmis brattar hlíðar, fjalllendi, gil eða önnur svæði þar sem hæðarmunur er mikill. TRI má nota til að styðja við greiningu á landslagi, flokkun landforma, mat á breytileika landslags og túlkun á jarðfræðilegum eða vatnafræðilegum einkennum landslags. Fleiri upplýsingar má nálgast hér: TRI Paper: https://arc.lib.montana.edu/ojs/index.php/IJS/article/view/2914 GDAL TRI: https://gdal.org/en/stable/programs/gdal_raster_tri.html [EN] Terrain Ruggedness Index (TRI) describes local terrain variation and ruggedness by measuring the elevation difference between a raster cell and its surrounding cells. It was calculated from the 10 m ÍslandsDEM using GDAL raster tri. Low values, close to 0, indicate smooth or relatively uniform terrain. Higher values indicate greater elevation differences and more rugged terrain, such as steep slopes, mountainous areas, gullies, or other areas with strong local relief. TRI can be used to support landscape analysis, landform classification, assessment of terrain variability, and interpretation of geological or hydrological landscape characteristics. More info: TRI Paper: https://arc.lib.montana.edu/ojs/index.php/IJS/article/view/2914 GDAL TRI: https://gdal.org/en/stable/programs/gdal_raster_tri.html
Lýsigagnagátt