Contact for the resource

Byggðastofnun

6 record(s)
 
Type of resources
Available actions
Keywords
Contact for the resource
Provided by
Years
Formats
Representation types
Update frequencies
status
Service types
Scale
From 1 - 6 / 6
  • Categories  

    Niðurhalsþjónustur Byggðastofnunar

  • Categories  

    Vinsamlega hafði samband við Byggðastofnun vegna nánari upplýsinga.

  • Categories  

    Byggðastofnun vinnur nú að gagnvirku þjónustukorti sem sýnir aðgengi landsmanna að allri almennri þjónustu hins opinbera sem og einkaaðila. Markmiðið með kortinu er að auka og bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þjónustu hins opinbera og einkaaðila og þannig leggja grunn að bættri þjónustu við almenning, auknum tækifærum til nýsköpunar og frekari stefnumótunar á sviði byggðamála. Kortið er samstarfsverkefni stjórnvalda og sameiginlegt hagsmunamál ríkis og sveitarfélaga. Áhersla ríkisstjórnarinnar á þjónustukortið boðar nýja tíma í upplýsingagjöf en með kortinu og gögnunum sem það byggir á mun fást hröð og einföld yfirsýn yfir hvaða þjónusta er veitt hvar í landinu öllum til hagsbóta. Kortið er unnið í samstarfi við Náttúrufræðistofnun og Alta ráðgjafarfyrirtæki. Eftirfarandi flokka (og undirflokka) má finna í kortinu: Neyðarþjónusta: - Lögreglustöðvar - Slökkvilið - Björgunarsveitir Heilbrigðisþjónusta: - Bráðamótttaka - Heilsugæslustöðvar - Læknavaktin - Hjúkrunarheimili - Tannlæknar Fræðslustarfsemi: - Leikskólar - Grunnskólar - Framhaldsskólar - Háskólar - Kvikmyndaskólar - Tónlistarskólar - Listdansskólar - Myndlistarskólar Félagsþjónusta: - Sjúkratrygginar - Tryggingastofnun - Kirkjur Menning, afþreying, íþróttir: - Bókasöfn - Skjalasöfn - Lista- og menningarsöfn - Menningarhús - Íþróttahús - Félagsmiðstöðvar - Golfklúbbar - Félagsstarf eldri borgara Veitur, samgöngur, flutningar: - Flugvellir með áætlunarflugi - Sjúkraflugvellir - Pósthús - Póstkassar Verslun: - Bensínstöðvar - Lyfjaverslanir - Bankar og sparisjóðir - Dagvöruverslanir - Vínbúðir - Bíla- og dekkjaverkstæði Önnur þjónusta: - Dýralæknar - Fablab Stjórnsýsla: - Skrifstofur landshlutasamtaka - Ráðuneyti - Dómstólar - Sveitarstjórnarskrifstofur - Sýsluskrifstofur - Atvinnuþróunarfélög - Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - Vinnumálastofnun

  • Categories  

    Kortasjá fyrir póstnúmer á Íslandi frá Byggðastofnun. Náttúrufræðistofnun halda utana um vefsjánna. Byggðastofnun starfrækir aðra kortasjá þar sem önnur og mun fleiri gögn eru birt: https://thjonustukort.is/

  • Categories  

    Póstnúmer hafa í raun þann eina tilgang samkvæmt lögum um póstþjónustu, að veita starfsfólki og flokkunarvélum upplýsingar um hvert eigi að senda viðkomandi póstsendingu þannig að henni verði dreift til rétts viðtakanda. Hlutverk póstnúmera er því aðeins að styðja við skilvirka dreifingu póstsendinga. Hins vegar hafa, fyrirtæki og yfirvöld, í gegnum tíðina notað póstnúmer í öðrum tilgangi, t.d. til ýmiss konar flokkunar varðandi réttindi og skyldur borgaranna. Sérhver önnur notkun á póstnúmerum er á ábyrgð þess aðila sem notar póstnúmer til einhvers konar aðgreiningar í sinni þjónustu. Allar breytingar á póstnúmerum þurfa þannig að styðja við tilgang þeirra samkvæmt lögum um póstþjónustu, þ.e. að stuðla að hagkvæmri dreifingu póstsendinga.

  • Categories  

    Upplýsingar teknar úr upplýsingum sem fylgja þjónustukortinu: "Gerð þjónustukortsins varð tillaga í byggðaáætlun 2018-2024 og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið fól Byggðastofnun framkvæmdina sem hófst á fyrri hluta árs 2018. Ljóst var frá upphafi að stöðugt þyrfti að uppfæra gögn á kortasjá, annars úreldist hún hratt því þjónusta og staðsetning þjónustu breytist sífellt. Upplýsingar eru þannig meginviðfangsefnið, undirstaða og innihald kortsins, og vinna við þjónustukortið hefur því mjög snúist um að fá stofnanir til þess að skrá upplýsingar sem þær varða á samræmdan hátt þannig að þær mætti lesa inn á kort og uppfæra á sjálfvirkan hátt. Þegar gagnaöflun fyrir þjónustukortið lauk (2020) tóku við stöðugar uppfærslur á kortagögnum því þjónusta breytist, færist til, nýir þjónustuþættir bætast við og aðrir hætta. Í þessu ljósi er gott og virkt samstarf við fólk, fyrirtæki og stofnanir eftirsóknarvert. Byggðastofnun leitar því eftir því að fái ábendingar, athugasemdir og leiðréttingar við kortið. Þetta má gera með því að smella á flipann Athugasemdir. Við vinnslu kortsins hefur fram til þessa verið keypt ráðgjöf og gögn af Landmælingum Íslands, Alta ráðgjafarfyrritæki, Capacent og Creditinfo auk Þjóðskrár, Hagstofunnar og Ríkisskattstjóra."