staðfang
Type of resources
Available actions
Topics
INSPIRE themes
Keywords
Contact for the resource
Provided by
Formats
Representation types
-
Notagildi og orðskýringar: Staðfang inniheldur upplýsingar um staðsetningu mannvirkja og annarra áfangastaða, s.s. heimila, aðseturs fyrirtækja, frístundahúsa, áningarstaða, veitumannvirkja og opinna svæða. Staðfang er þýðing á enska hugtakinu Address og nær hugtakið yfir götuheiti og húsnúmer, sérheiti byggingar og landfræðilega staðsetningu, hvort sem um er að ræða heimili einstaklinga, aðsetur fyrirtækja eða staðsetning á t.d. fjarskiptamastri. Þannig hefur staðfang víðari merkingu en heimilisfang, þó eðli hugtakanna sé svipað. Sveitarfélögin í landinu annast skráningu upplýsinganna og viðhald þeirra. Uppbygging: Auðkenni staðfangs er heitinúmer/staðfanganúmer. Tengsl staðfangaskrár og fasteignaskrár eru með þeim hætti að fasteignaskrá byggist upp af skráningu lands (landnúmer. landnr), fasteignaheita/staðfanga (heitinúmer. heinum) og mannvirkja (fastanúmer. fastnum og matsnúmer. fnum). Þessu er hægt að líkja við mengi, innan eins landnúmers geta verið eitt eða fleiri heitnúmer og innan hvers heitinúmers geta verið núll eða fleiri fastanúmer/matsnúmer. Það fer eftir því hversu djúpt við köfum ofan í gögnin hvernig endurtekning á sér stað. Eigindir: FID - Upplýsingalaust auðkennisnúmer fyrir gagnagrunn HMS. Þessi dálkur er ekki sýndur í WFS grunni. HNITNUM – Hnitnúmer staðfangahnits. Hlaupandi upplýsingalaust auðkennisnúmer staðfangs. Hvert staðfang getur verið tengt mörgum hnitum, en hvert hnit hefur aðeins eitt hnitnúmer. SVFNR - Sveitarfélagsnúmer er fjögurra stafa auðkennisnúmer. BYGGD - Byggðarnúmer innan viðkomandi sveitarfélags. LANDNR - Hlaupandi sex stafa auðkennisnúmer landeigna í landeignaskrá HMS. HEINUM – Staðfanganúmer. Heinum er sjö stafa auðkennisnúmer staðfanga. Eitt heinum er fyrir hvert staðfang. Annarstaðar er þetta STADFANG_NR. MATSNR - Matsnúmer (7 stafir). Raðnúmer. Sérhver matseining er auðkennd með matsnúmeri. Sum staðföng benda á ákveðna matseiningu, flest benda ekki sérstaklega á neitt matsnúmer. POSTNR - Póstnúmer þess póstsvæðis sem staðfang er innan skv. nýjustu upplýsingum frá Byggðastofnun. HEITI_NF - Staðvísir í nefnifalli. HEITI_TGF - Staðvísir í þágufalli. HUSNR - Staðgreinir, húsnúmer. BOKST - Staðgreinir, viðbættur bókstafur. VIDSK - Staðgreinir, viðskeyti við staðfang. SERHEITI - Sérheiti staðfangs. DAGS_INN - Dagsetning fyrstu innskráningar. DAGS_LEIDR - Dagsetning síðustu leiðréttingar. GAGNA_EIGN - HMS er eigandi staðfangaskrár. TEGHNIT - Tegund hnits, 0 Eftir að yfirfara tegund hnits, 1 Áætlaður miðpunktur mannvirkis, 2 Staðsetning megin inngangs í mannvirki, 3 Hnitpunktur staðsettur á innkeyrslu lóðar, 4 Hnitpunktur staðsettur með vissu innan lóðamarka, 5 Hnitpunktur staðsettur innan áætlaðs byggingarreits. YFIRFARID - Staða hnits, 0 Óyfirfarið, 1 Yfirfarið, 2 Þarf endurskoðun, 9 Vantar heitinúmer. YFIRF_HEITI - Þessi dálkur er ekki lengur nýttur. ATH - Notað til ítarlegri aðgreiningar t.d. á matshlutum og skráningu heimildarmanna eða heimilda. NAKV_XY - Áætluð skekkjumörk staðsetningar hnits í metrum. HNIT - Staðsetning staðfangs í ISN93 formi. Sett fram sem "POINT (X-hnit Y-hnit)". Þessi dálkur er ekki sýndur í WFS grunni. N_HNIT_WGS84 - Norður hnit í breiddargráðu WGS84. Allt í gráðum, ekki mín og sek. Fyrstu 2 tölustafir eru fyrir framan kommu og allt eftir það fyrir aftan kommu. E_HNIT_WGS84 - Austur hnit í lengdargráða WGS84. Allt í gráðum, ekki mín og sek. Mínus merki og fyrstu 2 tölustafir eru fyrir framan kommu og allt eftir það fyrir aftan kommu. NOTNR - Auðkennisnúmer þess starfsmanns sem átti síðast við þetta hnit í gagnagrunninum. LM_HEIMILISFANG – Þessi dálkur er ekki lengur nýttur. Yfirleitt sami og VEF_BIRTING VEF_BIRTING- Birtingaform staðfangs með landnúmeri viðskeyttu. Samanstendur af HEITI_NF, HUSNR, BOKST, VIDSK, (LANDNR). HUSMERKING - Sýnir dálkana HÚSNR og BOKST saman.