Landsþekjandi
Type of resources
Available actions
Topics
INSPIRE themes
Keywords
Contact for the resource
Provided by
Formats
Representation types
Update frequencies
status
Scale
-
Gögin upplýsingar um strok og tjón sem hefur átt sér stað sjókvíeldi. Hægt er að sjá hvar strokið átti sér stað, hvenær og hverskonar fiskur strauk. Einnig er hægt að sjá hvort hjón var á búnaði eða gat á kví. Fyrir frekari upplýsingar er bent á að hafa samband við matvælastofnun.
-
Landinu er skipt í fimm umdæmi. Í hverju umdæmi er umdæmisstofa MAST þar sem héraðsdýralæknir sinnir opinberu eftirliti með heilbrigði og velferð dýra og framleiðslu búfjárafurða á svæðinu. Í sínu umdæmi hafa héraðsdýralæknar eftirlit með sláturdýrum, sláturafurðum og afurðastöðvum, ásamt eftirliti með heilbrigði, hirðingu, aðbúnaði og aðstöðu nautgripa á búum þar sem framleidd er mjólk til sölu. Héraðsdýralæknar sinna framkvæmd sóttvarnaaðgerða og fylgjast með viðhaldi varnargirðinga í umdæminu. Þeir hafa eftirlit með búfé og öðrum dýrum eftir því sem lög ákveða. Einnig halda þeir skrá yfir alla eftirlitsskylda aðila í sínu umdæmi og sinna eftirliti með þeim samkvæmt sérstakri eftirlitsáætlun, sem er endurskoðuð um hver áramót. Héraðsdýralæknar vinna einnig önnur störf sem MAST felur þeim á hverjum tíma Umdæmin eru: Suðvesturumdæmi: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Garðabær, Grindavíkurbær, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit, Kjósarhreppur, Kópavogsbær , Mosfellsbær, Reykjanesbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Skorradalshreppur, Snæfellsbær, Stykkishólmsbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar. Norðvesturumdæmi: Akrahreppur, Árneshreppur, Blönduósbær, Bolungarvíkurkaupstaður, Dalabyggð, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Ísafjarðarbær, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur, Skagabyggð, Strandabyggð, Súðavíkurhreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Sveitarfélagið Skagaströnd, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð. Norðausturumdæmi: Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Skútustaðarhreppur, Svalbarðshreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjasveit. Austurumdæmi: Borgarfjarðarhreppur, Djúpavogshreppur, Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Sveitarfélagið Hornafjörður og Vopnafjarðarhreppur. Suðurumdæmi: Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Skaftárhreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Ölfus og Vestmannaeyjabær.
-
Matvælafyrirtæki sem vinna matvæli úr dýraafurðum, fiskvinnslur, frystiskip og vinnsluskip, kjötvinnslur og mjólkurvinnslur eru með leyfi frá Matvælastofnun, eru á listum yfir samþykktar starfstöðvar og undir eftirliti stofnunarinnar ( sviðs neytendaverndar og fiskeldis) Aðilar sem stunda fiskveiðar og dreifa sjávarafurðum, að undanskildum smásölum, eru einnig undir eftirliti Matvælastofnunar.
-
Til að varna útbreiðslu helstu smitsjúkdóma í sauðfé og nautgripum, einkum riðu og garnaveiki, er landinu skipt í sérstök varnarhólf. Flutningar sauðfjár, nautgripa og landbúnaðartækja milli varnarhólfa er óheimill eða sætir takmörkunum.
-
Fóðurfyrirtæki er fyrirtæki eða einstaklingur sem starfar við framleiðslu, vinnslu, geymslu, flutning eða dreifingu fóðurs þ.m.t. framleiðsla, vinnsla eða geymsla framleiðanda á slíkum vörum til notkunar á eigin bújörð, hvort sem fyrirtækið er rekið í ágóðaskyni eður ei og hvort sem það er einkarekið eða opinbert fyrirtæki. Fóðurframleiðendur sem framleiða fóður til notkunar á eigin bújörðum eru ekki á þessum lista.
-
Til að tryggja velferð dýra og dýraeigendum í dreifðum byggðum reglubundna dýralæknaþjónustu svo og bráðaþjónustu gerir hið opinbera þjónustusamningar við dýralækna á viðkomandi svæðum. Þetta eru svæði með tiltölulega fá dýr og þar sem ekki er talið líklegt að dýralæknir hafi næg verkefni til að‘ geta sett upp starfstöð og framfleytt sér alfarið með sölu á dýralæknaþjónustu. Þessi svæði eru: Vaktsvæði 1: Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kjósarhreppur, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Voga. Vaktsvæði 2: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppur. Vaktsvæði 3: Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær. Vaktsvæði 4: Dalabyggð, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og fyrrum Bæjarhreppur. Vaktsvæði 5: Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur. Vaktsvæði 6: Húnaþing vestra (nema fyrrum Bæjarhreppur), Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd. Vaktsvæði 7: Akrahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður. Vaktsvæði 8: Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhreppur. Vaktsvæði 9: Langanesbyggð, Norðurþing, Skútustaðahreppur, Svalbarðshreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit. Vaktsvæði 10: Fjarðabyggð, Fljótsdalshreppur, Múlaþing (norður af Djúpavogi) og Vopnafjarðarhreppur. Vaktsvæði 11: Sveitarfélagið Hornafjörður og Múlaþing (Djúpivogur og suður af honum). Vaktsvæði 12: Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Vaktsvæði 13: Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Ölfus og Vestmannaeyjabær.
-
Yfirlit yfir þau fiskeldissvæði, bæði á sjó og landi, þar sem komið hafa fram sjúkdómar í fiskum. Smitsjúkdómar eru ýmist af völdum baktería, snýkjudýra, sveppa eða veira. Skoða má niðurstöður frá árinu 2020 í Ársskýrsla dýralæknis fisksjúkdóma: http://mast.is/static/files/skyrslur/arsskyrsla-dyralaeknis-fisksjukdoma-2020.pdf Fiskisjúkdómanefnd Fisksjúkdómanefnd starfar samkvæmt 4. gr. laga nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum, sem er svo hljóðandi: Ráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum. Framkvæmd stjórnsýslunnar er að öðru leyti í höndum Matvælastofnunar sem hefur eftirlit með því að ákvæðum laganna sé framfylgt. Matvælastofnun til ráðgjafar við framkvæmd laganna er fisksjúkdómanefnd. Ráðherra skipar fimm manna fisksjúkdómanefnd: einn skv. tilnefningu Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, tvo skv. tilnefningu Hafrannsóknastofnunar og skal annar vera sérfróður um ferskvatnsfiska en hinn um sjávardýr og einn skv. tilnefningu Fiskistofu og yfirdýralækni, sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Matvælastofnun skal hafa forgöngu um að stundaðar séu fisksjúkdómarannsóknir og gera tillögur til ráðherra um aðferðir til varnar gegn útbreiðslu fisksjúkdóma, sem getur um í lögum þessum, og annað er að fisksjúkdómum lýtur. https://www.mast.is/is/maelabord-fiskeldis/fisksjukdomanefnd Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við matvælastofnun.
-
Vinsamlega hafið samband við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vegna nánari upplýsinga.
-
Gagnasettið sýnir staðsetningar þeirra landeldisstöðva sem starfræktar eru á Íslandi. Þær skiptast upp eftir skráningarskyldum stöðvum og leyfisskyldum stöðvum. Til starfrækslu fiskeldisstöðva þarf starfsleyfi Umhverfisstofnunar og rekstrarleyfi Matvælastofnunar skv. lögum um fiskeldi, nr. 71/2008. Sótt er um rekstrarleyfi Matvælastofnunar og starfsleyfi Umhverfisstofnunar í þjónustugátt Matvælastofnunar. Hægt er að sjá ýmsar upplýsingar um fiskeldi á mælaborði fiskeldis hjá Matvælastofnun: https://www.mast.is/is/maelabord-fiskeldis Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Matvælastofnun
-
Upplýsingar um staði þar sem fram fer búfjárrækt. Gögin skiptast upp eftir því hvaða búfénaður er ræktaður á viðkomandi býli og því er hægt að finna upplýsingar um nautgripabú, sauðfjárbú, geitabú, loðdýrabú, alifuglabú og hrossabú. Fyrir frekari upplýsingar um gagnasettin er hægt að hafa samband við Matvælastofnun