WMS tiles
Type of resources
Provided by
Years
Formats
Update frequencies
status
Scale
-
Allt landið Í árslok 2019 sömdu Náttúrufræðistofnun um aðgengi að myndgrunni af landinu til að nota sem bakgrunn í kortaþjónustum og til almennrar kortlagningar hjá opinberum aðilum. Um er að ræða gervitunglamósaík, svokallað Vivid mósaík, frá bandaríska fyrirtækinu Maxar. Myndirnar eru aðallega frá gervitunglunum Geoeye 1 og WorldView 2, 3 og 4 og er upplausn eða greinihæfni þeirra 50 cm. Um 40% myndanna eru frá 2019 og 90% myndanna eru frá 2014-2019. Höfuðborgarsvæðið Í árslok 2019 sömdu Náttúrufræðistofnun um aðgengi að myndgrunni af höfuðborgarsvæðinu til að nota sem bakgrunn í kortaþjónustum og til almennrar kortlagningar hjá opinberum aðilum. Um er að ræða gervitunglamósaík, svokallað Metro mósaík, frá bandaríska fyrirtækinu Maxar. Myndin ver tekin 27. maí 2019 og er upplausn eða greinihæfni hennar 30 cm. Staðsetningarnákvæmni er innan við einn meter. Þéttbýlisstaðir Í tengslum við uppfærslu strandlínunnar við þéttbýlisstaði Íslands þá hafa verið settar inn myndir af þéttbýlisstöðum eftir því sem því verkefni vindur fram. Myndirnar eru teknar með DJI Zenmuse P1 myndavél Náttúrufræðistofnun og eru með 5 cm myndpunktstærð. Þær myndir eru af • Höfn í Hornafirði - https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/eng/catalog.search#/metadata/5e96ac11-203a-4a66-be5a-f309aef461f8 • Hólmavík - https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/eng/catalog.search#/metadata/e0b4e0b0-7a03-4a52-a336-5f562b725210 • Búðardal - https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/eng/catalog.search#/metadata/1f72f031-d911-4514-be4f-43522aa1677d • Vopnafirði - https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/eng/catalog.search#/metadata/b51c388c-6db9-4b3e-9f0c-f714915c02d4 að auki er til drónamynd af • Akureyri sem unnin var af Svarma - https://gatt.lmi.is/geonetwork/srv/eng/catalog.search#/metadata/f2fd04a5-e4f6-4a98-802b-b3b9077dde43 Drónamyndirnar eru opnar öllum til notkunar og er hægt nálgast þær sem vefþjónustur, til niðurhals á Open Aerial Map eða ef ókað er eftir frumgögnum með því að hafa samband við Náttúrufræðistofnun. Aðgengi að mósaíkinu er að öðru leyti í gegnum vefþjónustur Náttúrufræðistofnun. Opinberum aðilum er heimilt að nota mósaíkið sem bakgrunn í innri kerfum sínum og vefþjónustum. Gögnin verða ekki uppfærð. Vinsamlega hafið samband við Náttúrufræðistofnun til að fá nánari upplýsingar.