Dýrasvif
Fjölmargir eðlis- og efnafræðilegir þættir hafa áhrif á útbreiðslu dýrategunda. Til þess að geta spáð fyrir um hvernig lífverur munu bregðast við breyttum aðstæðum í framtíðinni, t.d. hlýnandi umhverfi, þarf að gera sér grein fyrir tengslum dýrasvifsins við umhverfisþætti og uppsjávarfiskistofna. Á hafsvæðinu austan við Ísland, gætir mikilla öfga í umhverfisaðstæðum. Áraskipti eru á magni pólsjávar úr norðri, sem er kaldur og seltulítill, og selturíks og hlýs Atlantssjávar úr suðri. Útbreiðsla þessara ólíku sjógerða getur haft áhrif á útbreiðslu, samfélagsgerð og samspili dýrasvifs og fiska.
Frá árinu 1970 hefur Hafrannsóknastofnun farið í umfangsmikla leiðangra austur fyrir Ísland að vori og safnað gögnum um frumframleiðni, dýrasvif og síld og mælt umhverfisbreytur, þ.á.m. seltu, hita og næringarefni. Í þessari rannsókn munum við einblína á tvö ólík svæði, kalda sjóinn austur og norðaustur af Íslandi (66-67.5°N, 9-12°W) og hlýja sjóinn í suðaustri (63.5-65°N, 9-12°W) og leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
Hefur tegundasamsetning, þroski og magn dýrasvifs breyst undanfarin 22 ár (1995-2017)?
Er samband á milli umhverfisbreyta, þroska og magns dýrasvifs og magns og göngumynsturs síldar?
Endurspeglar hlutfall og magn dýrasvifs í sjónum fæðu síldarinnar, þ.e. er síldin að velja sér fæðu?
Markmið verkefnisins er að fá heildrænan skilning á samspili umhverfisþátta, dýrasvifs og síldar í uppsjávarvistkerfinu austan við Ísland. Niðurstöður rannsóknarinnar verða nýttar til þess að skilja betur göngumynstur og fæðuvistfræði síldarinnar og til að kortleggja samfélagsgerð dýrasvifsins. Aukinn skilningur á dýrasvifinu, sem er einn mikilvægasti fæðuhlekkur hafsins, og samspili þess við fiskistofna sem lifa í uppsjónum, er nauðsynlegur til þess að hægt sé að spá fyrir um breytingar á komandi árum.
Simple
- Date ( Publication )
- 2020-11-03
- Status
- On going
- Maintenance and update frequency
- As needed
- Keywords ( Theme )
-
- Dýrasvif
- Áta
- GSL
- Keywords ( Place )
-
- Iceland
- Topic categories in accordance with EN ISO 19115 ( Theme )
-
- Biota
- Oceans
- Use limitation
- https://www.lmi.is/leyfi-fyrir-gjaldfrjals-gogn/
- Spatial representation type
- Text, table
- Denominator
- 0
- Metadata language
- is
- Character set
- UTF8
- Topic category
-
- Biota
- Oceans
))
- Reference system identifier
- 4326
- Distribution format
-
-
Tafla með hnitum
(
)
-
Tafla með hnitum
(
)
- OnLine resource
- Heimasíða Hafrannsóknastofnunnar ( WWW:LINK-1.0-http--link )
- OnLine resource
-
Upplýsingar um dýrasvif á heimasíðu Hafrannsóknastofnunnar.
(
WWW:LINK-1.0-http--link
)
Samspil umhverfisþátta, dýrasvifs og síldar.
- Hierarchy level
- Dataset
- Statement
- Vinsamlega hafið samband við Hafrannsóknastofnun vegna nánari upplýsinga og/eða skoðið upplýsingar um rannsóknir hér: https://www.hafogvatn.is/is/rannsoknir/dyrasvif-og-ata
gmd:MD_Metadata
- File identifier
- 576982e7-3095-44ef-91fb-76af9ed79fd9 XML
- Metadata language
- is
- Character set
- UTF8
- Date stamp
- 2021-08-11T14:07:52
- Metadata standard name
- ISO 19115:2003/19139
- Metadata standard version
- 1.0
Overviews

Spatial extent
))
Provided by
